Loksins kom hin langþráða helgi. Föstudag keyptum við föstudagsnammi og ís í bænum, því það var svo gott veður. og svo var disneystund. En í þetta sinn var hún trufluð. Það búa tveir fyrrverandi bekkjarbræður hans Mána hér nálægt og þeir komu að spyrja eftir honum. Svo hann fór út í körfu, með nýja boltann. Við hin fylgdum svo á eftir og fórum í fótbolta og körfu. Máni fékk að vera úti til 21.10. Ég sendi honum sms og sagði honum að koma heim
ST’ÓR strákur sem ég á!!!. Í dag ákvað Máni að hann myndi elda kvöldmattinn, því hann hafði fengið lánaða uppskriftabók á bókasafni skólans. Við fórum að versla og hann gerði chilli con carne. Við ákváðum að bjóða Alex, vini hans og Bitten og Ritu í mat og vígja íbúðina. Mér finnst svo lítið pláss hér að ég hef ekki alveg getað séð fyrir mér mikið af gestum, en það gekk svona líka ljómandi vel. Við vorum bæði úti og inni og krakkarnir dreyfðust á herbergin og allt í hinum mestu rólegheitum. Máni fór svo með Alex heim að gista og ég er búin að svæfa hin tvö. Annað heitt á enninu og hitt hóstandi. Sjáum hvað verður á morgun. Góða nótt.
Myndir
Jæja, fyrstu myndirnar
Það gekk vel að flytja. Ég er svo heppin að þekkja svo mikið af frábæru fólki hér sem vill allt fyrir mig gera. Krakkarnir voru hjá Bitten og Alex vini hans Mána á meðan við fluttum. Laugardag var svo allt í kössum, en við fórum í skólabíó og skógarferð. Á miðvikudaginn kom Malte vinur hans Mána með honum heim og sem betur fer var netið komið í lag en þeir fóru líka í skóginn saman að leika. Á sunnudaginn fóru Bitten og Lone með mér í Nörremarken að þrífa húsið á meðan krakkarnir voru hjá vinum. Á fimmtudaginn fóru krakkarnir til Kim og Andreas, maðurinn hennar Ane kom að bora dót á veggi. Nú er ég búin að taka til í herberginu háns Ólivers. Og er svo að fara að vinna í kvöld. Vortónleikar. Set inn fleiri myndir þegar ég er komin lengra í tiltektinni
. Knús frá Erlu þreyttu.
Síðasta helgi :-)
Föstudag var ég hálfur haus
þreytt! En Óliver fékk vin sinn með heim og ég bakaði pönnuköur og fannst ég frábær
. Við keyrðum vininn heim og keyptum fredagsslik. Svo disney og huggulegheit og Röskva bað um að fara að sofa
. Laugardag fórum við í rosa finan hjólatúr hér í Skaarup. Það var yndislegt veður og við tókum kex og djús með og vorið var í loftinu og það var rosa fínt og allir hjóluðu eins og hetjur. Röskva er að æfa sig án hjálpardekkja, svo ég hleyp eins og skrýtin kona með kústaskaft bundið við hjólið hennar. Er ekki alveg að fíla þessa aðferð
en samt…. Svo fórum við í afmæli til Agers og Berthrams og maður átti að koma í búning. Óliver og ég vorum tilraunafólk, Röskva ætlaði að vera “rapunzel” (með sítt hár í turni), en þegar hún sá að Máni var rokkari, vildi hún vera rokkarRapunzel
. kósý afmæli og svo gisti Máni hjá vini, því hann fór á fimleikaæfingu á sunnudagsmorgni. Við sóttum svo gaurana sunnudag. (já gleymdi þeim æsispennandi fréttum að ég sofnaði með krökkunum klukkan 21 laugardagskvöld). kósý heimsóknir og svo heim og elda kjötbollur. Góð helgi. Nú fara krakkarnir til Kim á morgun og koma aftur til mín á föstudaginn.
Brilliant vetrarfrí :-)
Nokkrar myndir frá brilliant heimsók
Trampolín, wii, dýragarðurinn, lestarsafnið (alveg brilliant
), mc donalds og alles. Kærar þakkir fyrir komuna.
Fastelavn og vinterferie :-)
Sidste fredag var der fastelavn på drengenes skole og i Røskvas børnehave. Vi kørte derfor af sted om morgenen med fuldt udklædt bagsæde, drengenes skitøj i bagagerummet og min og Røskvas oppakning til København
Drengene har været i Sverige på ski i 3 dage sammen med Kim og Lars og jeg glæder mig helt vildt til at høre drengenes fortællinger
De er på vej hjem i dag og kommer forbi om et par timer for at hente Røskva. Men Røskva og jeg tog til København og besøgte nogle af de dejlige mennesker vi kender der
Det var en absolut fantastisk tur og så skønt at se folk igen. Med nogle mennesker er det bare sådan, at ligemeget hvor lang tid der går, så er det som om man har set hinanden i går – når man så er sammen. Det var nemt at komme rundt med klapvogn og datteren og vi hyggede os. Følte mig lidt som en Rudolf Steiner mor, når Røskva tegnede og legede med hjemmelavede teaterdukker og alle børn omkring os i toget spillede på telefoner/Ipads e.l.
Manglede bare lidt speltbrød og varm komælk
Følte mig også lidt hægtet af teknikken – bliver nok nødt til at tage mig sammen, så jeg kan følge med mine børn
. Men vi tog over til Inga, Niclas, Nói og Leó fredag. Lørdag tog Inga, Røskva, Nói og jeg i teatret og på café. Så besøgte vi allesammen Anne, Jacob, Tilde og Karla. Drak kaffe og hyggede og det endte så med at Inga og Niclas inviterede alle på aftensmad. Så det var næsten ligesom i gamle dage på sommerstedgade
Så hyggeligt og sjovt. Og godt med lidt update på de folk jeg holder af. Søndag besøgte vi Anna, Liva og Asta. Så skønt at se dem igen. Og pigerne legede og legede og legede, udklædning, MGP, tegne, synge, klippe og det hele. Og Anna og jeg drak kaffe imens vi dansede stopdans, malede piger og hyggede
Så vi fik sluttet deres ferie og begyndt vores på en hyggelig søndag. Tusind tak til alle i Kbh. for en dejlig weekend. Vi tog så hjem mandag og var hjemme ved 12 tiden. Røskva havde 3 projekter; *lave en ovn ud af kasse, *prøve at cykle uden støttehjul, *leje en film som vi kunne se. Så vi cyklede uden støttehjul på biblioteket for at låne en film. Der var så tilfældigvis fastelavn, som vi så var med til. Hjem igen og lave ovnen, rydde lidt op, lave mad og se barbie
Og nu hygge inden hentetid
God tirsdag til jer.
Myndir :-)
Máni notaði jólagjafapeninginn til að kaupa sér “jumpsuit”, ég fór á Naturama með Óliver, Simon vin hans, Röskvu og Karoline laugardag á meðan Máni var í bíó með Anton. Sunnudag fórum við í legeland, því moster gaf Óliver gjafakort í afmælisgjöf
Svo buðu vinir okkar, okkur í mat á veitingastaðnum. Takk kærlega fyrir okkur
Afmælismyndir – Óliver 7 ára
Afmælisveisla fyrir bekkinn í skólanum hjá mér föstudag. Svo heim og borða pizzu og horfa á disney. Laugardag morgunmatur, svo fór Kim að vinna og við að undirbúa. Gestirnir komu klukkan 15 í veislu og smá sleðaferð
. Um kvöldið gistu Signe, Asger og Berthram, svo partýið hélt áfram framá sunnudag um hádegið
Óliver var glaður og sæll og ánægður með allt sem hann fékk. TAKK.
Jæja, góð helgi að baki
í barnafansi.
Föstudag vorum við bara heima að kósast. Laugardag var Máni í fimleikum frá 9 til 12, svo fórum við í skólabío með ‘Oliver öll og tókum Asger og Anton með okkur. Máni gisti svo hjá Antoni og Karoline kom til okkar og gisti hér
Laugardagurinn gekk með að byggja hella úr ýmsum húsgögnum, það var klippt og límt og horft á sjónvarpið. Sunnudag kom Peter svo að sækja Karolin og skila Mána og Anton og Emma komu í heimsókn í staðinn. Emil vinur hans ‘Olivers kom í heimsókn. Nú – ró
2012
Jæja, þá er árið hafið. Fyrsta vikan var svolítið töff, svona eins og gengur og gerist eftir frí
En allir glaðir að komast í gang aftur og nú er rútínan við að vera komin í gang fyrir alvöru. Alex, vinur Mána kom heim með okkur á miðvikudaginn að leika. Á fimmtudaginn byrjuðu fimleikarnir aftur, svo það var fínt. Á föstudaginn var ljósveisla í leikskólanum hjá Röskvu með grilluðum pylsum, og svo sendum við svona pappírslampa í loftið með ljósi í. Mjög fallegt. Svo bara heim og disney – LOVELY. Snemma að hátta eftir erilsama viku. Laugardaginn fór Ollli að heimsækja Emil vin sinn, Röskva fór að heimsækja Catthy vinkonu sína og Máni að heimsækja Alex. Ég sjálf fór í göngtúr með Ane
. Þegar ég var búin að sækja börnin og drekka kaffi með foreldrunum og svoleiðis, fórum við í mat til Alex, mömmu hans og systur. Mamma hans, Bitten, er sú sem ég var með á gamlárs og sú sem við fórum í sumarbústaðinn með í haustfríinu. Máni gisti hjá Alex og á sunnudeginum fórum við öll í sund. Þar voru fullt af fólki sem við þekkjum, en ég hafði það af að vera í bikiníi án þess að vera með of miklar áhyggjur af því hvort að brjóstið myndi hoppa uppúr eða maginn leka niður yfir beltisstrenginn
já, það gerist ýmislegt hér í 2012. Kim bauð okkur svo á tónleika hjá skólakór hans í kirkju niður í bæ. Rosalega flottir tónleikar. Svo heim að gera hamborgara. Í dag kom Ivan, vinur Olla með heim og núna er ég á leið í bælið. Sem sagt líf í tuskunum hér. Þegar við erum heima við er mikið spilað wii og hálfunglingurinn minn hefur mikið að gera í tölvunni
. Í dag bökuðum við líka smá prufukökur fyrir afmæli kóngsins, sem jú er á næsta leyti. Mikil tilhlökkun þar
.
Jóladagur
Þá er búið að leika og leika og leika og leika
Og leika. Byrjuðum klukkan 7 í morgun og bráðum fer ég að bursta tennur og finna náttföt. Röskva var slöpp í morgun, en er öll að hressast. Við fórum í smá göngutúr, en annars erum við sem sagt búin að vera hér og njóta allra gjafanna. Á morgun fara ungarnir til pabba síns.











































































































































































































































































































































































